Aug 14, 2005

Menningarnótt er handan við hornið...

Það styttist óðum í menningarnótt, við í Öndinni erum búnir að æfa mjög reglulega síðustu vikur til að vera til í slaginn. Við höfum bætt 10 nýjum lögum á prógrammið okkar, tvö frumsaminn lög eftir Matta og tvær syrpur eftir hann líka. Þetta lítur allt mjög vel út :-) Allir að mæta á Kaffi Vín á menningarnótt, talið í um klukkan 21:30 og spilað fram á rauðan morgunn...

Af öðrum málum er það að frétta að ég er ekki ennþá búinn að taka neitt frí að ráði, þrátt fyrir að það hafi verið planið. Það er víst svo að ekki geta allir tekið sér frí á sama tíma og þar sem ég er búinn að taka hluta af mínu fríi ákvað ég að láta eftir og vinna síðustu viku. Næ væntanlega að taka einn eða tvo daga í næstu viku síðan tekur maður eitthvað frí í haust.

Þar sem það er svo langt síðan ég hef eitthvað látið út úr mér varðandi pólitík að þá get ég ekki látið hjá líðast að minnast á að loksins er R-listinn að liðaðst í sundur. Sem er að sjálfsögðu mikil gleði tíðindi að eitthvað vitrænt stjórnunarform komist á borgina á nýjan leik með nýjum meirihluta í vor...nóg um það í bili...

2 comments:

Anonymous said...

missi af andartónleikum, verð í sólbaði á florida.
Gengur bara betur næst...

hjaltinn

Anonymous said...

Hey, komdú nú með fréttir frá Menningarnótt og endilega settu inn myndir. Trúi ekki öðru en Ála hafi verið jafn dugleg með myndavélina og í fyrra :-)

Kata